Byggðu kunnáttuna til að hanna eigin AI-lausnir

Ég vinn með lykilstarfsmönnum 1-1 og kenni þeim að nota gervigreind til að flýta fyrir og styðja við eigin vinnu.

Saman finnum við hvar gervigreind nýtist raunverulega hjá ykkur.

Hvað gætuð þið verið að gera mikið meira?

Þið viljið nýta gervigreind í að

  1. Flýta fyrir / gera fyrir ykkur tímafreka vinnu
  2. Styðja starfsfólk við flókna vinnu.

En það er ruglingslegt að reyna að finna hvar möguleikar fyrir innleiðingu gervigreindar eru eða hvernig er best að nýta þá svo þið haldið áfram að nota tíma í að gera hlutina handvirkt.

Það er tími sem gæti farið í að gera meira af því sem aðeins starfsfólk getur gert eða auka gæði þess.

Það sem situr eftir

Ekki fyrirlestur. Þrennt sem verður eftir hjá ykkur.

Manneskja sem kann þetta

Einhver hjá ykkur sem kann að byggja gervigreindarlausnir fyrir sín eigin verk, og verk annarra í sama hlutverki. Þekkingin fer ekki út um dyrnar með mér.

Lausnir á verkum sem eru raunverulega endurtekin

Við byggjum á verkefnum sem einhver vinnur aftur og aftur hjá ykkur, ekki á tilbúnum sýnidæmum. Þið eigið lausnirnar og notið þær áfram.

Öruggt frá fyrsta degi

Gagnaöryggi útskýrt á mannamáli og stillt rétt strax í byrjun, svo þið vitið nákvæmlega hvað má fara inn og hvað á aldrei að fara inn.

Af hverju ég

Þetta er ekki mín hugmynd. Þetta er það sem íslenskir stjórnendur sögðu mér sjálfir.

Áður en ég seldi nokkrum manni neitt tók ég viðtöl við átta íslenska stjórnendur, eigendur og framkvæmdastjóra, um hvernig þeir nota gervigreind í dag og hvar þeir stranda. Ég spurði þá ekki hvort þeir vildu kaupa eitthvað. Ég spurði hvað þeir hefðu raunverulega gert.

Þrennt kom upp hjá nánast öllum, óspurt: þeir vita ekki hvað er óhætt að setja inn, þeir nota gervigreind grynnra en þeir vildu, og almennu námskeiðin sem þeir höfðu setið skildu ekkert eftir sig.

Forskot er byggt beint á þessum svörum. Þetta er ekki námskeið sem ég fann upp við skrifborðið.

Svona byrjar þetta

Þrjú skref. Fyrstu tvö kosta ekkert.

Þú tekur enga ákvörðun fyrr en þú veist nákvæmlega hvað við myndum byggja og með hverjum.

Tækifærafundur

Ókeypis

Við setjumst niður, þú og ég, og förum yfir hvar gervigreind gæti raunverulega gagnast hjá ykkur. Þú gengur út með skýrari mynd af eigin rekstri og betri spurningar til að spyrja þitt eigið fólk, hvort sem við höldum áfram eða ekki.

Ég tala við fólkið sem vinnur verkin

Ókeypis

Stjórnandi veit sjaldnast nákvæmlega hvernig hvert verk er unnið í raun. Þess vegna sest ég niður með þeim sem vinna verkin sem við flögguðum og kemst að því hvernig dagurinn þeirra lítur raunverulega út.

Tillaga

Ég kem til baka með það sem fannst: hvaða verk er hægt að leysa, hvernig útkoman lítur út, hverja við myndum þjálfa og hvað það kostar. Þá fyrst tekurðu ákvörðun um hvort við höldum áfram.